Skip to main content

Hildur Björnsdóttir býr og starfar í Noregi.  Hún hefur stundað nám í myndlist og grafík á Íslandi,  í Noregi og Svíþjóð. 

Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga víðsvegar um heim og haldið nokkrar einkasýningar. 

Hildur sækir meðal annars innblástur sinn í íslenska náttúru og augnablik á ferðalögum sínum víðs vegar um heim sem verða að einhvers konar litlum sögum í verkum hennar. 

Við vinnslu verkanna notar hún ýmsa tækni;  málun, teikningu, ljósmyndir, blönduð tækni.  Undanfarin ár hefur hún einbeitt sér að því að nota blandaða tækni í grafík.

Hún hefur einnig starfað sem myndlistarkennari í grunnskóla, leiðbeinandi í háskóla í kennslufræði fyrir myndlistarkennara og listamenn ásamt haldið listasmiðjur/verkstæði fyrir börn, unglinga og fullorðna.  Einnig hefur hún verið stjórnarmeðlimur í GFK og BkiB, norsk samtök listamanna. 

Hún er félagsmaður í SÍM (Samband Íslenskra listamanna), ÍG (Íslensk Grafík), NBK (Norske Billedkunstnere), KKV (Kunstnärernas kollektivverkstad Bohuslän).  

Listaverk í Artóteki