Skip to main content

Laura Valentino er myndlistarkona sem fæddist í Bandaríkjunum árið 1955 og hefur verið búsett í Reykjavík síðan 1988. Hún hefur meistaragráðu í myndlist frá Kaliforníuháskóla í Berkeley og vinnur með gamla ljósmyndatækni, listgrafík, pastelmálun og enkaustik. Hún er félagi í Samband íslenskra myndlistarmanna, Íslenskri Grafík og Félag Íslenskrar samtímaljósmyndar og verk hennar hafa verið sýnd víða, bæði innanlands og erlendis.

Laura sækir innblástur sinn aðallega í kraft og viðkvæmni íslenskrar náttúru og hún leitast við að finna hið óvenjulega í hversdagslegum hlutum. Nýjasta sería hennar heitir Borgartré og er sjónræn túlkun á þéttbýlisskógrækt í Reykjavík. „Viðfangsefnið mitt er að finna í skógum og almenningsgörðum í kringum Reykjavík, t.d. í Öskjuhlíð, Heiðmörk, Elliðaárdal og Tjörninni. Trén mín virðast vera gróðursett af handahófi og tilvist þeirra verður fyrir hörðum þáttum, bæði náttúrulegum og stjórnmálalegum, en þau lifa af. Og fegurðin skín í gegn.“

Sjá meiri upplýsingar á slóðinni lauraval.com

Listaverk í Artóteki