Sigríður Rut Hreinsdóttir (f. 1957) er fædd og uppalin á Akranesi en býr og starfar í Reykjavík.
Hún útskrifaðist úr málaradeild frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands vorið 1990.
Samhliða náminu í MHÍ eða frá 1985–1991 sótti hún kvöld- og helgarnámskeið í Myndlistaskóla Reykjavíkur í hlutateikningu, módelteikningu, vatnslitun o.fl. fögum.
Grunnnám í teikningu, form- og litafræði stundaði hún í Linderud Videregående skole í Oslo, Noregi árið 1983. Hún hefur haldið 7 einkasýningar og nokkrar samsýningar.
Sigríður Rut er einnig sjúkraliði að mennt og hefur unnið að mestu við það starf með myndlistinni.
Hún málar aðallega með olíulitum á striga en hefur einnig málað með vatnslitum og akríllitum og unnið með blandaðri tækni.
Efnivið og innblástur sækir hún til náttúrunnar og í eigin hugarheim.
Hún er meðlimur í Samtökum íslenskra myndlistamanna (SÍM) og er með vinnustofu heima.
Listaverk í Artóteki
- 30 x 30 cm. með rammaVerð: 93.000Leiga: 4.000
- 30 x 30 cm. með rammaVerð: 93.000Leiga: 4.000
- 30 x 30 cm. með rammaVerð: 93.000Leiga: 4.000