Helga Jóhannesdóttir útskrifaðist frá Leirlistadeild Myndlista og handíðaskóla Íslands árið 1991. Hún hefur starfað að myndlist síðan á eigin vinnustofu að Álafossi Mosfellsbæ og nú að Reykjavegi 84,Mosfellsbæ. Helga hefur haldið einkasýningar hérlendis og erlendis og tekið þátt í fjölda samsýninga. Verk hennar eru til í opinberri eigu m.a. Listasafni Reykjavíkur, Dómsmálaráðuneytinu og Mosfellsbæ.
Einnig hefur Helga starfað í listgreinakennslu á framhaldsskóla og leikskólastigi. Hún stofnaði og stýrði Tómstundaskóla Mosfellsbæjar um árabil.
Helga er meðlimur í Sambandi íslenskra myndlistamanna SÍM og um árabil félagi í Leirlistafélaginu.
Síðustu ár hefur Helga snúið sér í meiri mæli að tvívíðum verkum með blandaðri tækni og olíu á striga.
Frá fyrstu tíð hafa verk Helgu átt djúpa tengingu við hin ólíku öfl og element náttúrunnar. Í bæði tvívíðum og þrívíðum verkum nýtir hún form, línur,liti og andstæður náttúruaflanna frá hinu fínlega til hins grófa og óhefta, til að tjá tilfinningar sínar og hughrif.
‘‘Sköpun mín er ferðalag hugans um hið þekkta og óþekkta þar sem samspil og jafnvægi meðvitundar og undirmeðvitundar verður spennandi glíma‘‘.
Listaverk í Artóteki
- 30 x 30 cmVerð: 115.000Leiga: 4.000
- 45 x 35 cmVerð: 130.000Leiga: 4.000
- 45 x 35 cmVerð: 130.000Leiga: 4.000
- 30 x 30 cmVerð: 115.000Leiga: 4.000
- 30 x 25 cmVerð: 100.000Leiga: 4.000