Skip to main content

Artótek, Samvinnuverkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur og Sambands íslenskra myndlistarmanna 

Með undirritun samnings milli lánþega og Aróteksins skuldbindur lánþegi sig til að fylgja eftirfarandi reglum Artóteksins: 

Lánþegi skal vera orðinn fjárráða og sýni gild persónuskilríki við undirritun samnings. Lánþegi veitir Artótekinu nauðsynlegar persónulegar upplýsingar (fullt nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang) og tilkynnir um breytingar sem á þeim kunna að verða. 

Grunnlánstími og lágmarkslánstími er einn mánuður en hámarkslánstími er 36 mánuðir.  Fyrsta greiðsla er frá leigudegi.  Eftir það er leiga rukkuð fyrirfram fyrir hvern mánuð.  Gjalddagi er 1. eða 15. hvers mánaðar.  Eindagi er 15  dögum síðar.  Mánaðarleg greiðsla er greidd í heimabanka.   Vangreiddir greiðsluseðlar fara í innheimtu strax eftir eindaga. 

Leiga þessi framlengist sjálfkrafa um einn mánuð í senn hafi lánþegi ekki skilað verki fyrir lok síðasta skiladag. Artótekið áskilur sér rétt til að krefjast þess að verki sé skilað tafarlaust sé ekki staðið við greiðslur.  

Leigugjald er háð söluverði verks. Sölu- og leiguverð er í þúsundum króna.  Upphæð í byrjun og/eða lok tímabils getur verið önnur.  Gjaldskrá miðast við að mánaðarleiga sé að hámarki 1/36 hluti söluverðs. Mánaðarleiga er þó aldrei lægri en 4000 kr. né hærri en 15.000 kr.  

Söluverð verks ákvarðar leiguverð á mánuði, skv. eftirfarandi:

  • upp að 144.000 kr. : 4.000 kr. 
  • 145.000-180.000 kr. : 5.000 kr. 
  • 181.000-216.000 kr. : 6.000 kr. 
  • 217.000-252.000 kr. : 7.000 kr. 
  • 253.000-288.000 kr. : 8.000 kr. 
  • 289.000-324.000 kr. : 9.000 kr. 
  • 325.000-360.000 kr. : 10.000 kr. 
  • 361.000-396.000 kr. : 11.000 kr. 
  • 397.000-432.000 kr. : 2.000 kr.     
  • 433.000-468.000 kr. : 13.000 kr.     
  • 469.000-504.000 kr. : 14.000 kr. 
  • 505.000 og upp úr : 15.000 kr. 

Listaverkið telst eign listamannsins meðan á lánstíma stendur eða þar til söluverð hefur verið greitt að fullu. Listamaðurinn getur því sett takmarkanir og/eða skilyrði fyrir leigu listaverksins sem koma þá fram í samningi við lánþega. Óheimilt er að flytja listaverk í eigu listamanns úr landi nema með skriflegu leyfi listamannsins. 

Óski lánþegi eftir að rifta samningi við Artótekið skal hann hafa greitt alla gjaldfallna leigu. 

Óski lánþegi eftir að kaupa verk sem hann hefur haft á leigu skulu allar leigugreiðslur sem hann hefur þegar innt af hendi dragast frá söluverði verks. Einnig er hægt að kaupa verk beint án samnings. 

Óinnrammaðar teikningar og grafíkverk eru eingöngu til sölu en afborgunargreiðslum má haga samkvæmt ofangreindum leiguskilmálum. 

Lánþegi ber fulla ábyrgð á listaverkinu á meðan á leigutíma stendur og er skaðabótaskyldur ef verkið verður fyrir tjóni á lánstímanum.  

Verki skal skila í sömu eða sambærilegum umbúðum og það var lánað í.  

Starfsmaður Artótek metur ástand verks þegar því er skilað inn. Ef listaverk hefur orðið fyrir tjóni er lánþega gefinn kostur á að greiða fyrir skemmdir eða kaupa verkið í því ástandi sem hann skilar því í.