Sigurborg Stefánsdóttir stundaði nám í Kaupmannahöfn og útskrifaðist frá Skolen for Brugskunst ( Danmarks Design skole ) 1987.
Hún hefur haldið 14 einkasýningar, á Íslandi, Danmörku og Ítalíu og tekið þátt í fjölda samsýninga víðsvegar um heim. Sigurborg hefur einnig fengist við myndskreytingar og bókagerð og var kennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1989-2000 og stundakennari við Listaháskóla Íslands 2000 - 2011. Hún hefur fengið styrki til námsdvalar í Bandaríkjunum og Japan. Aðferðir við myndsköpun hennar eru ýmiss konar; málun, teikning, grafík, klippimyndir, ljósmyndir ofl. Myndefnið er fjölbreytt, ýmist fíguratíft eða nonfíguratíft.
Listaverk í Artóteki
- 40 x 60 cmVerð: 100.000Leiga: 4.000
- 90 x 90 cmVerð: 250.000Leiga: 7.000